Námskeið í Felix, sameiginlegt skráningarkerfi ÍSÍ og UMFÍ eru
haldin samkvæmt samkvæmt beiðni.
Á undanförnum árum hafa verið haldin stutt Felixnámskeið víða um
land, í samráði við íþróttahéruðin. Það er ljóst að námskeiðin
skila marktækari notkun kerfisins, um leið og skilningur og reynsla
notenda eykst. Kerfið er hugsað sem sameiginlegt tæki allrar
Íþrótta- og Ungmennahreyfingarinnar og samnýting upplýsinga er
lykilforsenda þess að ekki sé verið að margskrá upplýsingar.
Þeir aðilar sem hafa áhuga að fá Felixnámskeið í sitt byggðarlag er
bent á að hafa samband við sitt íþróttahérað sem sér um, í samráði
við umsjónaraðila Felix um skipulag slíkra námskeiða.
Notendur eru einnig hvattir til að nýta sér handbækur og leiðbeiningar vegna kerfisins eða hafa samband við umsjónamanns Felix ef það vantar svör við fyrirspurnum eða aðstoð. Með yfirtökubúnaði er hægt að leiðbeina notendum í gegnum netið. Þá er einnig bent á starfsmenn íþróttahéraða sem margir hverjir hafa góða þekkingu á kerfinu og aðstoða sín íþróttafélög við kerfið.
