Flýtileiðir
Merki
Umsókn um aðgang
Umsjónaraðili Felixkerfisins Rúna H. Hilmarsdóttir runa@felix.is sér um að
stofna aðgang fyrir kerfisstjóra félaga.
Aðgangsúthlutun er á ábyrgð félaganna sjálfra, sem sjá um að
gefa þjálfurum, starfmönnum og öðrum þeim sem þeir kjósa að gefa
aðgang. Það er í höndum félaganna sjálfra að ákveða hverjir hafa
aðgang og að hverju. Félög geta óskað eftir aðstoð hjá
umsjónaraðila Felix, vanti þá aðstoð.
Nauðsynlegt er að félög haldi utan um hverjir hafa aðgang og að
hvaða gögnum. Góð vinnuregla er að halda skrá utan um
aðgangsaðildir og muna að fjarlægja aðgang fólks þegar það hefur
ekki lengur þörf fyrir hann.
