Flýtileiðir
Íslensk Getspá & Íslenskar getraunir
Íslensk getspá og Íslenskar getraunir eru tvö sjálfstæð félög en
með einn framkvæmdastjóra. Í gildi er þjónustusamningur milli
félaganna um að Íslensk getspá sjái um rekstur Íslenskra getrauna.
Hluti af andvirði allrar sölu félaganna renna beint til
uppbyggingar og starfsemi æskulýðs-og íþróttamála og til málefna
öryrkja. Því má segja að allir þeir sem spila í leikjum Getspár og
Getrauna geti fagnað sigri og átt von á góðum vinningi í leiðinni.
Með þáttöku í leikjunum er verið að styrkja nauðsynleg samfélagsleg
málefni og leggja traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu
þeirra, auk þess að gefa sjálfum sér tækifæri til þess að vinna
stórar fjárupphæðir.
Íslensk getspá er í eigu Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem á 46,67% hlut, Öryrkjabandalagið á 40% og Ungmennafélag Íslands 13,33%.
Íslenskar getraunir eru sjálfseignarstofnun innan íþróttahreyfingarinnar þar sem aðild eiga ÍSÍ og UMFÍ eins og hjá Íslenskri getspá, auk Knattspyrnusambands Íslands, Íþróttabandalags Reykjavíkur og Íþróttanefndar ríkisins.