Tilgangur og markmið

ÍSÍ er einu heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og þau eru æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu samkvæmt íþróttalögum.

 Tilgangur og markmið ÍSÍ:
að efla, samræma og skipuleggja íþróttastarfsemi á Íslandi
að stuðla að þróun hvers kyns íþrótta, jafnt afreksíþrótta og almenningsíþrótta
að annast samstarf um íþróttamál við ríkisvaldið og aðra innlenda aðila
að vera fulltrúi Íslands í íþróttamálum gagnvart öðrum þjóðum
að stuðla að útbreiðslu Ólympíuhugsjónarinnar og tryggja að Ólympíusáttmálinn sé virtur á Íslandi
að skipuleggja þátttöku Íslendinga í Ólympíuleikunum og öðrum mótum sem haldin eru undir vernd Alþjóða Ólympíunefndarinnar (IOC)
að tryggja drengilega keppni og berjast gegn hvers kyns mismunun og ofbeldi í íþróttum
að berjast gegn notkun hvers kyns lyfja, efna og aðferða sem bönnuð eru af IOC eða alþjóðlegum sérsamböndum
að gera ráðstafanir sem koma í veg fyrir að heilsu íþróttamanna sé stefnt í hættu
að taka þátt í starfsemi Ólympíusamhjálparinnar