Blaðamannafundur

Blaðamannafund skal íhuga með svipuðum formerkjum og fréttatilkynningu, fyrst og fremst skal íhugað hvort aðrir hafa áhuga á efninu og hvort tilefni er nægt til blaðamannafundar.

Það er ekki viðeigandi að halda blaðamannafund ef efnið er ekki annað en stutt fréttatilkynning sem afhent er.  Á blaðamannafundi eiga að vera þeir menn sem skipta máli varðandi málefnið.

Þegar þú heldur blaðamannafund, hugaðu þá að eftirfarandi atriðum:

  • Haltu blaðamannafund sem fyrst að deginum.  góður tími er frá hádegi til klukkan 17.  Eftir það er stutt til kvölds, þegar vinna á   úr efninu.  Kvöldfundir eru óvinsælir.  Íþróttafréttamenn vinna mikið á kvöldin vegna leikja og móta.  Haltu ekki fréttamannafund að kvöldi til nema þá af mjög sérstökum ástæðum.  Haltu ekki blaðamannafund á föstudegi, laugardegi, sunnudegi eða mánudegi.  Sum blöð birta ekki íþróttafréttir á laugardögum.  Um helgar er mikið að gera.  Og mörg blöð koma með helgarfréttir á þriðjudögum.  Það gerir mánudaga að erfiðum vinnudögum.
  • Veldu hentugan stað fyrir fundinn, helst í námunda við sem flestar ritstjórnarskrifstofur.
  • Dreifðu upplýsingum og tilkynningum í rituðu máli í upphafi fundar.
  • Flyttu stuttan formála og láttu fundinn aldrei standa meira en eina klukkustund.
  • Hugaðu að tímasetningu fundarins.  Láttu hann ekki rekast á stórviðburði á íþróttasviðinu.  Það kemur t.d. enginn á blaðamannafund þegar Íslendingar eru að keppa við Frakka í handknattleik!