Neysla
áfengis, tóbaks eða fíkniefna á aldrei samleið með iðkun íþrótta og
vill íþróttahreyfingin á Íslandi efla forvarnahlutverk sitt á
eftirfarandi hátt:
Setja fram markvissa stefnu
· hvetja
íþrótta- og ungmennafélög til þess að festa í lög sín ákvæði þar sem
tekin er einörð afstaða gegn neyslu á áfengi, tóbaki og fíkniefnum
· móta
sameiginlegar starfsreglur um hvernig tekið skuli á fíkniefnavanda ungs
fólks á vettvangi íþróttahreyfingarinnar og hvernig unnið skuli að
forvörnum
· gera öll íþróttamannvirki algerlega reyklaus
Stuðla að aukinni og almennari þátttöku ungs fólks í íþróttastarfi
· hvetja
íþrótta- og ungmennafélög til þess vinna markvisst að því að fjölga
iðkendum íþrótta meðal barna og unglinga, m.a. með því að auka
fjölbreytni í iðkuninni og tryggja þannig að öll börn og unglingar fái
tækifæri til að stunda íþróttir í samræmi við eigin þarfir, getu og
áhuga
· nýta
mannvirki og aðstöðu íþróttahreyfingarinnar til að festa íþróttastarf í
sessi sem raunhæfan valkost til skemmtunar fyrir unglinga, t.d. með því
að bjóða upp á iðkun óhefðbundinna greina, halda opin hús í
íþróttamannvirkjum, eða efna til annars konar íþróttastarfs fyrir
þessa aldurshópa þar sem meiri áhersla er lögð á að koma til móts við
þarfir þeirra fyrir afþreyingu og skemmtun en keppni og afrek
Auka þekkingu á skaðsemi fíkniefna og forvörnum innan hreyfingarinnar
· gefa
út fræðsluefni um fíkniefni og forvarnir fyrir þjálfara og iðkendur og
gera fræðslu um þessi málefni að föstum þætti í fræðslustarfi
íþróttahreyfingarinnar og í íþróttanámi í framhaldsskólum
· fela
þjálfurum að fræða þá iðkendur sem þeir þjálfa um áhrif áfengis, tóbaks
og fíkniefna á heilbrigði þeirra og árangur í íþróttum
· hvetja sambandsaðila íþróttahreyfingarinnar til þess að fjalla um fíkniefni og forvarnir í málgögnum sínum og ritum
Samþykkt á Íþróttaþingi 2. nóvember 1997