Haustið 2006 var forvarnardagurinn
haldinn að frumkvæði Forseta Íslands og með stuðningi
Actavis. Þótti hann takast með ágætum og árið 2007 var
ákveðið að endurtaka leikinn, nánar tiltekið miðvikudaginn 21.
nóvember. Síðan hefur dagurinn verið haldinn árlega.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er virkur þátttakandi í Forvarnardeginum, en fjölmörg íþróttafélög á Íslandi kynna starfssemi sína og þær íþróttagreinar sem eru í boði.
Í tengslum við daginn taka nemendur 9. bekkja grunnskólanna þátt í ratleik sem felur í sér heimsóknir á heimasíðu þeirra þriggja félagasamtaka sem koma að deginum: ÍSÍ, UMFÍ og Skátanna.
Lykilpunktar Forvarnardagsins
- Unglingar sem verja í það minnsta
klukkustund á dag með fjölskyldum sínum, eru síður líklegir til að
hefja neyslu fíkniefna
- Ungmenni sem stunda íþróttir og
annað skipulagt æskulýðsstarf falla mun síður fyrir
fíkniefnum
- Því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau verði fíkniefnum að bráð
Byggir á niðurstöðum íslenskra
vísindamanna sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og
hafa vakið alþjóðlega eftirtekt
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á www.forvarnardagur.is
