Flýtileiðir
Þjálfari 1a - almennur hluti
Að loknu þessu
stigi á þjálfarinn að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma hjá börnum
og unglingum á byrjendastigi. Til þess þarf hann að hafa
grundvallarþekkingu á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga.
Hann þarf að þekkja starfsemi líkamans auk helstu aðferða við kennslu.
Vinnulag: Fyrirlestrar, verkefnavinna og verkleg æfing.
Umfang: 20 kennslust.
Tími: Námið er kennt með ýmsu sniði, stutt námskeið eða fjarnám og er þá allt fyrsta stigið kennt í einu. Nánar er auglýst hverju sinni á heimasíðu ÍSÍ í hvaða formi námið er í boði hverju sinni.
Skráning: ÍSÍ, sími: 514-4000 eða netfang: namskeid@isi.is
| Námskeið nr. | Námskeið hefst | Lokaskráning | Staðsetning |