Námskeiðið
sem er samræmt fyrir allar íþróttagreinar er 20 kennslustundir, að
meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Haldið
verður áfram að fjalla starfsemi líkamans og íþróttameiðsl. Farið
verður yfir stefnu ÍSÍ í forvarnarmálum og einnig verður kynning á
notkun tölvu- og upplýsingatækni við þjálfun.
Þátttakandi verður að hafa lokið almennum hluta 1b til að komast á þetta námskeið.
Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjáfarastigs 1c hlýtur réttindi sem þjálfari hjá börnum 12 ára og yngri.
Vinnulag: Fyrirlestrar, verkefnavinna og verkleg æfing.
Námsmat: Skriflegt próf úr efni fyrsta stigs (1a, 1b og 1c almennum hluta).
Umfang: 20 kennslust.
Tími: Námið er ýmist í boði á stuttum námskeiðum eða sem fjarnám og er þá allt fyrsta stigið kennt í einu. Það er auglýst hverju sinni á heimasíðu ÍSÍ.
Skráning: ÍSÍ, sími: 514-4000 eða netfang: namskeid@isi.is
| Námskeið nr. | Námskeið hefst | Lokaskráning | Staðsetning |