Það er undir hverjum og
einum skóla komið hversu mikið er lagt í svona dag. Erlendis hefur
jafn vel heil vika verið helguð Ólympíuleikunum þar sem þeir hafa
verið fléttaðir saman við hinar ýmsu námsgreinar.
Staðsetning:
Íþróttahús og/eða
nánasta umhverfi.
Þátttakendur:
Nemendur og kennarar (ættingjar?).
Setningarathöfn:
-Nemendur og kennarar safnast saman í íþróttahúsi eða á skólalóð.
Hægt er að hafa inngöngu líkt og þá raða eftir heiti bekkja. Enn
skemmtilegra er ef hver bekkur stendur fyrir ákveðið land, er búin
að gera fána, kynna sér íþróttahetjur frá viðkomandi landi
o.s.frv.
- Íþróttamaður/-kona sem hefur tekið þátt í Ólympíuleikum segir
örstutt frá reynslu sinni og upplifun)
-Nemendur lesa upp staðreyndir um leikanna fyrr og nú.
-Ólympíufáninn dreginn að húni um leið og ólympíuóðurinn er
leikinn.
-Ólympíueldurinn tendraður.
-Ólympíueiðurinn svarinn af nemanda/-um.
-Pappírsdúfur látnar fljúga um svæðið.
-Skólastjóri lýsir leikana hafna.
Mögulegar
æfingar og leikir:
Vallarhlaup:
Samkvæmt heimildum er vallarhlaup eina keppnisgreinin á fyrstu
Ólympíuleikunum, aðrar greinar bættust við síðar. Var þetta hlaup
jafn langt og leikvöllurinn eða 192 m (námkvæmlega 192,25 m).
Ein hugmynd er að allir í bekknum hlaupi þessa vegalengd á tíma,
tímarnir síðan lagðir saman og bekkurinn sem er með besta
samanlagðan tíma sigrar og svo koll af kolli.
Ólympíuhringirnir:
Bekkurinn myndar hönd í hönd línu. Byrjað á endanum, tímataka hvað
þau eru lengi að koma ólympíuhringjunum 5 (skemmtilegast ef þeir
eru í réttum litum) á hinn enda línunnar. Verða að haldast í hendur
allan tímann.
Skot á körfu:
Tveimur bekkjum stillt upp í röð við körfur sitt hvoru megin (ATH
fjarðlægt frá körfu og hæð körfu m.t.t. aldurs). Annað hvort hægt
að hafa tíma eða ákveðin fjölda karfa sem á að skora t.d. það lið
sem skorar fyrr 5 körfur vinnur. Röðin verður að ganga rétt fyrir
sig, allir verða að taka skot. Til að koma boltanum aftur í umferð
eftir skot er hægt að hafa einn ákveðin undir körfunni sem sendir
boltann til baka. Eldri krakkar ættu að ráða við að hafa 2 bolta í
umferð þ.e. taka skot, ná strax í boltann og senda á þann sem er
næstur í röðinni án bolta.
Handbolti með mjúkum bolta:
Nota mjúkan svampbolta. Reglurnar eru þannig að það má ekki taka
skref með boltann þannig að allir í liðinu verða að vera virkir að
hreyfa sig. Mark er skorað með því að leggja boltann á línuna á
milli markstanganna. Það gæti borgað sig að kalla þetta fremur
handbolta án skrefa en ruðning þar sem síðara orðið gæti gefið til
kynna að mikil átök séu leyfileg.
Kraftaleikir:
Tveir og tveir vinna saman í t.d. 30 sekúndur í senn.
Snúa bak í bak og reyna að ýta aftur á bak yfir ákveðna línu.
Halda um úlnliði og reyna að toga yfir ákveðna línu.
Leggja hendur á herðar félaga og reyna að ýta yfir ákveðna
línu.
Hér er hægt t.d. að setja upp fyrirkomulag bændaglímu.
Pokahlaup (boðhlaup):
Furðufata boðhlaup. Hvert lið hefur ákveðið sett af fötum (t.d.
buxur, hattur og kjóll) sem sá sem hleypur hverju sinni verður að
klæðast. Hægt að bæta við ýmsu þrautum á leiðinni s.s.
sprellikarlahoppi, varalita sig....
Stígvélakast:
Hver kastar lengst.
Fótbolti með risabolta:
Hægt að nota t.d. stóru ,,sjúkraþjálfara boltana". Ein hugmynd er
að láta tvo og tvo í hverju liði haldast í hendur og spila
þannig.
Annað:
Vippa golfkúlu í regnhlíf (eldri krakkar ) og/eða reyna að hitta
með hringjum á flöskur (yngri).
Hindrunarbraut á hjólabretti.
Útbúa 2 álíka þrautabrautir. Sniðugt að láta kennara og nemendur
keppa.
Hindrunarbraut á hjóli.
Skemmtiatriði frá t.d. frá einhverjum bekkjum og síðast en ekki
síst kennurum.