Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ólympíufjölskylda ÍSÍ
halda upp á Alþjóðlega Ólympíudaginn 23. júní. Þennan dag árið 1894
var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð. Þetta er því sérstakur dagur í
sögu íþrótta og er markmiðið að bjóða fólki að koma saman, hreyfa
sig, læra nýjar íþróttagreinar og kynnast ólympískum hugsjónum og
gildum.
Dagurinn er opinn fyrir alla unga sem aldna, reynda og óreynda.
Allir sem taka þátt og prófa einhverjar íþróttagreinar fá
viðurkenningu frá Alþjóða Ólympíuhreyfingunni.
DAGSKRÁ
Egilshöll 13:00 til 15:00
UMF Fjölnir bíður upp á íþróttastöðvar í Egilshöllinni. Stöðvarnar
eru byggðar upp sem þrautir úr flestum deildum félagsins og verður
hægt að spreita sig í hinum ýmsu íþróttum. Ólympíufarar verða á
staðnum og veitar verða viðurkenningar fyrir þátttöku.
Laugaból – íþróttasvæði Ármanns 13:00 til 15:00
Fimleikadeild Ármanns bíður alla velkomna í kynningu
Breiðholt
ÍR bíður opnar æfingar fyrir alla í frjálsum íþróttum og
knattspyrnu daganna 21. – 25. júní
Laugardalur 20:00 - 22:00
Komdu og prófaðu öðruvísi íþróttir.
Við íþróttasvæði Ármann /Þróttar - Laugarból
• Kynning á hafnarbolta í boði Hafnarboltafélags
Reykjavíkur
• Hjólaskíða kennsla í boði skíðagöngufélagsins
Ullar
Skylmingamiðstöðin undir stúkunni á
Laugardalsvelli
Komdu og kannaðu hvað þú getur gert með sverðinu. Landsliðsfólk
tekur á móti og leiðbeinir.
Sundlaugin í Laugardal – Innilaugin
Sýningarleikur í sundknattleik og á eftir gefst almenning tækifæri
á að prófa
Miðnæturhlaup powerade hefst kl: 22:00
stundvíslega
Þetta frábæra hlaup hentar fólki á öllum aldri, bæði byrjendum og
lengra komnum og hægt er að velja um þrjár vegalengdir. Skráning á
staðnum frá kl: 18:00 og á www.marathon.is
- 3 km skemmtskokk án tímatöku kostar – 1.000
kr.
- 5 km skemmtiskokk með tímatöku kostar – 1.500
kr.
- 10 km skemmtiskokk með tímatöku kostar – 1.500
kr.
Allir sem taka þátt í hlaupinu fá svo frítt í sund á eftir.


