Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík.
Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting. Þátttakendur munu læra
hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að
afreksíþróttamönnum. Efni ráðstefnunnar er mjög fjölbreytt og
leitast er við að það eigi erindi við alla þá sem koma að
afreksíþróttastarfi svo sem þjálfara, afreksíþróttamenn,
sálfræðinga, sjúkraþjálfara, lækna, íþróttafræðinga, stjórnendur í
íþróttahreyfingunni og dómara.
Nokkrar vinnustofur verða m.a. í boði á ráðstefnunni:
- Providing sport psychology services at the 2004 Summer Olympic Games
- Sálfræðilegar hliðar dómgæslu
- Psychological prevention intervention & support for injured athletes
- Psychological aspects of talent development
- Visualization techniques as mental preparation for competition – Part 2
- Rebounding after an injury in elite sport
- Enhancing the motivation of athletes
- Working with a handball team and a coach in the Swedish elite division
- A female sport psychologist working with male athletes
- Detection, diagnosis and treatment of overtraining
- How to increase fairness in team sports
Ráðstefnugjald er 12.000 kr. Veittur er 50% afsláttur fyrir
nemendur (láta vita hjá hvaða skóla). Skráning fer fram á
skraning@ru.is. Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning
537-26-500670, kt: 670169-0499. Þegar þátttökugjald er greitt í
gegnum heimabanka þarf að senda kvittun á begga@isi.is. Einnig
verður hægt að greiða á staðnum.
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna
hér.