ÍSÍ og
Íþróttafræðasetur HÍ héldu ráðstefnu um starf íþróttaþjálfara
föstudaginn 30. apríl í E-sal Íþróttamiðsöðvarinnar í
Laugardal. Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ
setti ráðstefnuna og minnti á nauðsyn umræðu um starf
íþróttaþjálfara, enda væri mikilvægi þeirra
ótvírætt.
Steen Gleie frá
knattspyrnusambandinu í Danmörku var aðalfyrirlesari ráðstefnunnar
og fjallaði hann um starf íþróttaþjálfara frá ýmsum sjónarhornum,
hlutverk þeirra og starfsumhverfi. Hann lagði m.a. áherslu á
þekkingu og menntun þjálfara og hversu áríðandi það væri að spyrja
og ræða við iðkendur á barns- og unglingsaldri, hvers vegna þeir
væru í íþróttum, hverjar þeirra væntingar væru.
Aðrir fyrirlesarar á
ráðstefnunni voru Þorlákur Árnason knattspyrnuþjálfari hjá
Stjörnunni, Guðbjörg Norðfjörð íþróttastjóri Hauka, Þráinn
Hafsteinsson yfirþjálfari frjálsíþróttadeildar ÍR, Olga
Bjarnadóttir fimleikaþjálfari á Selfossi og Jacky Pellerin
yfirþjálfari sunddeildar Ægis.
Atriði sem sem
tekin voru fyrir af starfandi þjálfurum í 15 mín
erindum:
• Menntunar- og hæfniskröfur við ráðningu
þjálfara?
• Í hverju felst starfið? Hvaða hugmyndir
hefur fólk um þjálfara? Skýrslur?
• Samstarfsaðilar (innan félags og utan).
• Mat á árangri í starfi þjálfarans. Hvaða
þættir eru metnir? Hvaða þætti ætti að
meta?
• Aðstöðumál, starfsaðstaða þjálfara, vinnutími,
starfsöryggi, möguleiki til starfsframa
og menntunar.
• “Burn out”, hvað þarf til að viðhalda áhuga
þjálfara?
• Framtíðarsýn fyrir fagið
Allir fyrirlesararnir
sátu síðan í pallborði í lok ráðstefnunnar og svöruðu fyrirspurnum
úr sal.
Ráðstefnuhaldarar munu taka
saman ráðstefnurit og gefa út í netútgáfu sem hægt verður að
nálgast hér. Glærur fyrirlesara er hægt að skoða hérna fyrir
neðan.
Minnum á að hægt er að nálgast fyrirlestra frá öðrum ráðstefnum ÍSÍ með því að smella hér.