Þjálfari 3

Inntökuskilyrði: Lágmarksaldur 20 ár. Þarf að hafa lokið öðru þjálfarastigi. Eins árs starfsreynsla frá því að þjálfarastigi tvö var lokið

Skilgreining:

Að loknu þessu stigi á þjálfarinn að geta tekið að sér að skipuleggja og útfæra þjálfun hjá félagi eða deild. Hann á að geta tekið að sér þjálfun yngri landsliða og kennt á námskeiðum hjá sérsamböndum og ÍSÍ.

Uppbygging náms:

Námið skiptist í almennan hluta (33,3%) og sérgreinahluta (66,7%). Námskeiðið er 120 kennslustundir, 40 í almenna hlutanum og 80 í sérgreinahlutanum.

Skipulag: Getur verið með ýmsum hætti t.d.

  1. Skipt sex 20 stunda einingar:

    Þjálfari 3 – a, almenni hlutinn (2x20 kennslustundir),

    Þjálfari 3 – b, fyrri hluti sérgreinahlutans (2x20 kennslustundir).

    Þjálfari 3 – c, seinni hluti sérgreinahlutans (2x20 kennslustundir).

  2. Kvöldnámskeið.

Sérsamband getur séð um allt námskeiðið, haft samstarf við önnur sérsambönd um kennslu almenna hlutans eða látið nemendur sækja þann hluta hjá ÍSÍ. Einnig væri hugsanlegt að smærri sérsambönd tækju sig saman um sérgreinahlutann þar sem farið væri nokkuð djúpt í þjálffræði almennt og svo ynnu þjálfararnir sjálfstæð verkefni sem tengjast sinni grein. Verkefnin yrðu svo hluti af námsmati.

Almennur hluti 33,3%

Að mestu leyti fyrirlestrar.

Starfsemi líkamans

Orkubúskapur líkamans, orkuferlin og notkun þeirra við mismunandi vinnu, þjálfun í hita og kulda, prófanir á íþróttamönnum.

Sálarfræði

Hugarþjálfun, stjórnunaraðferðir,

Kennslu og aðferðafræði

Samspil álags og hvíldar, uppbygging tímabils með tilliti til þess að ná hámarksárangri á ákveðnum tíma. Stjórnunaraðferðir, samskipti, skipulag íþróttamóts, íþróttamannvirki, afreksíþróttir/almenningsíþróttir.

Samhæfing og tækni

Jafnvægi, hrynjandi, viðbragð, rúmskyn, gróf og fín samhæfing, sjálfvirkni.

Íþróttameiðsli

Algeng íþróttameiðsl, nudd, teipingar.

Námsmat

Skriflegt próf

Námsefni:

Gjerset, Haugen og Holmstad. Þjálffræði. Iðnú 1998.

Sérgreinarhluti 66,7%

Verklegt og bóklegt.

Tækni

Leikfræði/taktík

Þjálfunaraðferðir

Hreyfingarfræði

Reglur/mótafyrirkomulag

Námsmat

Skriflegt próf

Verkefnavinna

Verklegt próf

Námsefni: