Útgáfa

ÍSÍ hefur á síðustu misserum lagt töluverða vinnu í að endurskipuleggja útgáfustarfsemi sína. Árið 1999 kom út Þjálffræðibók í samvinnu við bókaútgáfuna IÐNÚ. Bókin er notuð sem kennslubók á íþróttabrautum framhaldsskólanna og leysir af hólmi fræðslurit ÍSÍ. Bókin er sömuleiðis undirstaða kennsluefnis í fræðslukerfi ÍSÍ. Bókin fæst hjá IÐNÚ.

ÍSÍ hefur einnig gefið út smærri fræðslu- og upplýsingabæklinga sem hefur verið dreift ókeypis um land allt. Efni þessara bæklinga er nú hægt að nálgast hér á heimasíðunni.