4 heiðurskrossar veittir á 100 ára afmæli ÍSÍ

Á afmælishátíð ÍSÍ í Ráðhúsi Reykjavíkur 28. janúar sl. sæmdi Ólafur E. Rafnsson forseti ÍSÍ þau Ara Bergmann Einarsson, Guðmund Kr. Jónsson, Hrafnhildi Guðmundsdóttur og Kolbein Pálsson Heiðurskrossi ÍSÍ fyrir langvarandi og góð störf í þágu íþróttahreyfingarinnar.  Allir þessir einstaklingar hafa komið víða við í hreyfingunni, í félögum, íþróttahéruðum og sérsamböndum ÍSÍ og öll voru þau í stjórn ÍSÍ eða Ólympíunefndar Íslands um eitthvert skeið.

Á myndinni eru frá vinstri:  Ólafur E. Rafnsson forseti ÍSÍ, Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, Kolbeinn Pálsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Ari Bergmann Einarsson og Lárus Blöndal varaforseti ÍSÍ.