30.11.2011
Lyfjaeftirlit ÍSÍ hélt árlegan upplýsingafund með sérsamböndum og sérgreinanefndum fyrr í dag. Umfjöllunarefnin voru nýr bannlisti WADA sem gildi tekur þann 1. janúar n.k. og breytingar frá núgildandi lista, helstu atriði er lúta að undanþágum frá bannlista, umfjöllun um útgefið fræðsluefni, skráður lyfjaprófunarhópur og hlutverk sérsambanda gagnvart lyfjaeftirliti.
Hér
til hliðar má sjá mynd af fulltrúum sérsambanda sem mættu á
fundinn.




