Samkvæmt Alþjóðlegu lyfjareglunum og kafla 11. í Alþjóðlegum
reglum um lyfjapróf ber lyfjaeftirlitum allra landa auk alþjóðlegra
sérsambanda að taka upp skráðan lyfjaprófunarhóp.
Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ hefur tekið upp slíkan hóp. Við val á
einstaklingum er tekið mið af stöðu viðkomandi á heimslista og
þátttöku á stórum alþjóðlegum mótum. Íþróttamönnunum ber að skila
ársfjórðungslega eftirfarandi upplýsingum fyrir komandi
tímabil:
1. Fullt nafn, símanúmer, heimilisfang og
netfang
2. Íþrótt og íþróttagreinar sem hann
stundar
3. Fullt nafn, símanúmer, heimilisfang og netfang
þjálfara
4. Samþykki fyrir að staðsetningarupplýsingum sé
miðlað til annarra lyfjaeftirlita sem rétt hafa til að boða
íþróttamanninn í lyfjapróf samkvæmt grein 14.6 í Alþjóða
lyfjareglunum
5. Nafn og heimilisfang þeirra staða sem æfingar
eru stundaðar á auk fastra tímasetninga.
6. Keppnisáætlun fyrir tímabilið auk upplýsinga
um nöfn á keppnisstöðum, staðsetningar þeirra og dagsetningar
keppni.
7. Upplýsingar um fötlun sem gæti haft áhrif á
framkvæmd lyfjaeftirlits.
8. Klukkustund hvern dag, milli kl. 6.00 og
23.00, þar sem hægt er að nálgast íþróttamanninn og boða hann í
lyfjapróf utan keppni.
Alþjóða lyfjaeftirlitið (WADA) hefur þróað vefforritið ADAMS til
þess meðal annars að halda utan um skráningu
staðsetningarupplýsinga hjá íþróttamönnum sem valdir hafa verið í
skráðan lyfjaprófunarhóp. Þess er krafist að íþróttamenn sem
Lyfjaeftirlitsnefnd ÍSÍ hefur valið í skráðan lyfjaprófunarhóp
skili staðsetningarupplýsingum með ADAMS. Íþróttamenn sem valdir
eru í skráðan lyfjaprófunarhóp fá leiðbeiningar um notkun ADAMS og
notendanafn til að skrá sig í kerfið.
Þær upplýsingar sem skráðar eru í ADAMS hefur Lyfjaeftirlitsnefnd
ÍSÍ sjálfkrafa aðgang að. Jafnframt alþjóðasamband viðkomandi
íþróttamanns og WADA. Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að
skipuleggja lyfjaeftirlit. Upplýsingarnar eru meðhöndlaðar svo
fyllsta trúnaðar sé gætt. Það er alltaf íþróttamaðurinn sjálfur sem
ber ábyrgð á því að upplýsingarnar séu réttar og fullnægjandi óháð
því hver skráir þær inn.
Refsing vegna brota á reglum um skil á
staðsetningarupplýsingum:
Eftirfarandi telst brot á reglum um skil á
staðsetningarupplýsingum samkvæmt grein 2.4 í Alþjóða
lyfjareglunum:
1. Sé upplýsingum ekki skilað tímanlega
2. Séu upplýsingar sem skilað er ekki réttar eða
ófullnægjandi
3. Missir af lyfjaprófi („missed test”), ef
íþróttamaður er ekki til staðar á uppgefnum stað og tíma og
Lyfjaeftirlitsnefnd getur ekki haft uppá íþróttamanninum í
lyfjapróf án fyrirvara.
Brot á einhverju af ofangreindu hefur í för með sér aðvörun í hvert
skipti sem slíkt brot á sér stað.
Þrjár aðvaranir á 18 mánaða tímabili hefur málsókn fyrir dómstóli
ÍSÍ í för með sér. Dómur vegna slíkra brota getur haft í för með
sér 12-24 mánaða útilokun frá æfingum og keppni.