Lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur staðið fyrir útgáfu á fræðslu og kynningarefni tengdu málaflokknum. Þeir sem hafa áhuga á að fá efnið sent geta haft samband á netfangið lyfjaeftirlit@isi.is. Hér fyrir neðan má sjá nýjasta fræðsluefnið.




Lyfjaeftirlit ÍSÍ gaf út í samvinnu við Íslensku auglýsingastofuna veggspjöld sem minna á baráttuna gegn lyfjamisnotkun í íþróttum. Styrkur fékkst frá UNESCO vegna útgáfu og dreifingar veggspjaldanna. Hér fyrir neðan má sjá afrakstur hugmyndavinnu starfsmanna auglýsingastofunnar. Hægt er að stækka veggspjöldin með því að smella á þau.



Lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur gefið út leiðbeiningar til íþróttamanna vegna lyfjaeftirlits í íþróttum. Er það gert í samvinnu við Alþjóða lyfjaeftirlitið (World Anti-Doping Agency - WADA). Einnig fékkst styrkur frá UNESCO vegna útgáfu og dreifingar bæklingsins. Hægt er að sjá bæklinginn með því að smella á myndina af honum hér til hliðar.