Play True Quiz
 
11. Rannsóknarferlið

Eftir að framkvæmd lyfjaeftirlits er lokið er sýnunum vandlega pakkað og þau send til greiningar á rannsóknarstofu sem nýtur viðurkenningar WADA.

Á rannsóknarstofunni er stuðst við alþjóðlega staðla WADA fyrir rannsóknarstofur við meðhöndlun sýnisins sem tryggir að ekki er hægt að spilla niðurstöðunum meðan á rannsókn stendur.

A sýnið er notað til að greina hvort einhver efni af bannlistanum sé að finna í sýninu. Ef greining þess gefur til kynna að íþróttamaðurinn hafi gerst sekur um lyfjamisnotkun á hann rétt á að vera viðstaddur greiningu B-sýnis.

Rannsóknarstofan tilkynnir niðurstöður greiningar til framkvæmdaraðila lyfjaeftirlitsins og WADA, yfirleitt innan 4-6 vikna. Framkvæmdaraðili lyfjaeftirlitsins greinir svo frá niðurstöðum þegar þær liggja fyrir á heimasíðu lyfjaeftirlits ÍSÍ, www.lyfjaeftirlit.is.