
Flýtileiðir
Play True Quiz
3. Mætt í lyfjaeftirlitsstöð
Íþróttamaður
sem boðaður hefur verið mætir til lyfjaeftirlitsstöðvar svo fljótt
sem kostur er. Lyfjaeftirlitsaðili getur samþykkt seinkun á mætingu
á lyfjaeftirlitsstöð vegna frekari keppni, áframhaldandi æfinga,
verðlaunaafhendingar, viðtals við fjölmiðla eða annarrar ástæðu sem
lyfjaeftirlitsaðili telur sanngjarna. Lyfjaeftirlitsaðili fylgir
íþróttamanninum hvert fótmál frá boðun og þar til komið er í
lyfjaeftirlitsstöð. Íþróttamaður þarf að geta framvísað skilríki
svo tryggt sé að hann sé sá sem var boðaður. Þegar komið er í
lyfjaeftirlitsstöðina bjóðast íþróttamanninum innsiglaðir drykkir,
en þar sem hann ber alla ábyrgð á því hvað hann lætur ofan í sig þá
er honum jafnframt frjálst að koma með sína eigin
drykki.
