
Listi Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar um bönnuð efni og aðferðir gildir innan ÍSÍ. Listinn er uppfærður 1. janúar ár hvert og er að finna á vef ÍSÍ, sjá hér.
Með nýjum Alþjóðlegum
lyfjareglum breyttust reglur um undanþágur vegna lækninga 1. janúar
2009. Nú fer það eftir afreksstigi hvort skila þarf inn
undanþáguumsókn fyrirfram eða afturvirkt. Ef íþróttamaður þarf,
samkvæmt læknisráði að taka inn lyf sem eru á bannlista Alþjóða
lyfjaeftirlitsstofnunarinnar, verður hann að sækja um undanþágu. Undanþágueyðublöðin, sem
meðhöndlandi læknir fyllir út, er að finna á vef ÍSÍ. Rétt útfyllta
umsókn skal svo senda til Undanþágunefndar Lyfjaráðs ÍSÍ sem tekur
hana til umfjöllunar og afgreiðir.
Nánar er fjallað um undanþágur á
heimasíðu Lyfjaeftirlits ÍSÍ, sjá hér.
Umsókn um undanþágu skal
senda:
Undanþágunefnd Lyfjaráðs ÍSÍ
Íþróttamiðstöðinni Laugardal
Engjavegi 6
104
Reykjavík
