Play True Quiz
 
Til umhugsunar

Notaðu engin lyf nema að höfðu samráði við lækni.

Ef þú þarft að nota lyf, skýrðu lækni þínum þá frá því að þú stundir íþróttir, svo hægt sé að taka tillit til þess við lyfjagjöf ef kostur er.

Lyf sem bannað er að nota í tengslum við æfingar eða keppni geta verið mismunandi eftir íþróttagreinum.

Kynntu þér hvaða lyf eru bönnuð í þinni íþrótt.

Gakktu sjálf/ur úr skugga um hvort lyf sem þú þarft að nota séu bönnuð í íþrótt þinni.

Gakktu sjálf/ur úr skugga um hvort fæðubótarefni sem þú notar innihaldi efni sem eru bönnuð í íþrótt þinni.

Ef bannað efni finnst í líkama þínum telst það lyfjamisnotkun, óháð því hvernig eða í hvaða tilgangi það er þangað komið.

Ef bannað efni finnst í líkama þínum berð þú sjálf/ur ábyrgð á því og þarft að taka út refsingu í samræmi við það.