Flýtileiðir
Sambandsaðilar
ÍSÍ er landssamband héraðssambanda/íþróttabandalaga og sérsambanda.
Aðilar að héraðssamböndum/íþróttabandalögum eru félög sem hafa
iðkun íþrótta á stefnuskrá sinni.
Aðilar að sérsamböndum eru héraðssamböndin/íþróttabandalögin.
Héraðssambönd/íþróttabandalög eru mynduð eftir legu og aðstöðu til
samvinnu um iðkun íþrótta.
Sérsambönd eru mynduð um ákveðnar íþróttagreinar og eru landsamtök
allra héraðssambanda, sbr. kafla 6, sem hafa iðkun þeirrar
íþróttagreinar á stefnuskrá sinni.
