27. apríl síðastliðinn var skrifað undir nýjan samning við
Flugfélag Íslands um afsláttarfargjöld í innanlandsflugi fyrir
allar einingar innan vébanda ÍSÍ.
Sú ánægjulega niðurstaða náðist að flugfargjöld hækka ekki frá
síðasta samningi. Vonandi mun það létta örlítið undir með
íþróttahreyfingunni í erfiðu rekstrarumhverfi.
Um leið og íþróttahreyfingunni er óskað allra heilla á
ferðalögum á æfingar og í keppni í íþróttum, þá er .ítrekað að
samningurinn gildir einungis um þá sem eru sannanlega að ferðast
á vegum hreyfingarinnar, á viðburði er tengjast hreyfingunni beint,
en ekki um maka og/eða fjölskyldur þeirra.
Varðandi bókunarferli, þá er það með sama hætti og áður, þ.e. að
bókað er beint hjá Flugfélaginu, sem leitar eftir staðfestingu hjá
ÍSÍ.
Það er eindregin ósk Flugfélags Íslands að íþróttahreyfingin
bóki ferðir eins tímanlega og unnt er.
Þar sem skrifstofa ÍSÍ er ekki opin um helgar, þá eru það einnig
eindregin tilmæli frá ÍSÍ og Flugfélagi Íslands að ferðir sem fara
á um helgi séu bókaðar í síðasta lagi fyrir hádegi á föstudegi,
ellegar er ekki hægt að tryggja að unnt sé að bóka ÍSÍ
fargjald.
Með því að smella á pdf skjalið hér á síðunni má sjá afrit af
nýja samningnum þar sem fram koma upplýsingar um fargjöld á
einstökum leiðum í innanlandsflugi.
Góða ferð!