Dagskrá Íþróttaþings ÍSÍ

1.     Forseti setur þing
2.     Kjörnir 1. og 2. þingforseti
3.     Kjörnir 1. og 2. þingritari
4.     Kosning ungra íþróttamanna skv. gr. 12.3
5.     Kosning 5 manna kjörbréfanefndar
6.     Ávörp gesta
7.     Lögð fram skýrsla framkvæmdastjórnar
8.     Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
9.     Umræður og samþykkt reikninga
10.    Kosning þingnefnda:
         a) Fjárhagsnefnd 5 manna
         b) Allsherjarnefnd 5 manna
         c) Laganefnd 5 manna
         d) Aðrar nefndir skv. ákvörðun þings hverju sinni
11.    Stofnun nýrra sérsambanda
12.    Lagabreytingatillögur
13.    Móta- og keppendareglur ÍSÍ
14.    Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði
15.    Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið og þingmeirihluti leyfir
16.    Þingnefndir starfa
17.    Kjörnefnd kynnir framboð
18.    Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum
19.    Tillögur fjárhagsnefndar
20.    Kosningar:
         a) Framkvæmdastjórn og varastjórn, sbr. 17. gr.
         b) Tveir skoðunarmenn og tveir til vara
         c) Sex dómarar í dómstól ÍSÍ og sex dómarar í áfrýjunardómstól ÍSÍ
         d) Kjörnefnd 5 manna og tveir til vara, sbr. grein 11.5
         Allar kosningar gilda fram að kosningu á næsta íþróttaþingi.
         Þær skulu vera skriflegar nema aðeins sé stungið upp á jafnmörgum og kjósa skal.
21.    Þingslit