Til Afrekskvennasjóðs
Íslandsbanka var stofnað með framlagi bankans árið 2007. Tilgangur
sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera
þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri.
Sjóðsstjórn skipa Svafa Grönfeldt, Vanda Sigurgeirsdóttir og Þórdís
Gísladóttir.
Endurskoðun fer nú fram á reglugerð um sjóðinn. Að lokinni þeirri
endurskoðun verða styrkir úr sjóðnum auglýstir að nýju til
umsóknar.
Reglugerð
Sjóðurinn heitir
Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ. Sjóðurinn var stofnaður í
janúar 2007 með 20 milljón króna framlagi bankans. Sjóðurinn er
undir stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, kt. 670169-0499,
og er til heimilis í höfuðstöðvum íþróttahreyfingarinnar í
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, 104 Reykjavík.
Markmiðið með stofnun
sjóðsins er að efla afreksstarf kvennaíþrótta í sinni víðustu mynd.
Sjóðurinn mun þannig virka sem hvatning og stuðningur við
afreksíþróttakonur úr einstaklings- og hópíþróttum, sem stefna að
frekari framförum og árangri í íþrótt sinni.
Stjórn sjóðsins skal
skipuð þremur konum sem tilnefndar eru af Íslandsbanka og ÍSÍ.
Sjóðsstjórnin er skipuð árlega, formaður sérstaklega. Sjóðsstjórnin
heyrir undir framkvæmdastjórn ÍSÍ og skal gera tillögur sínar um
úthlutanir til hennar.
Við mat á umsóknum, mun
sjóðsstjórn leggja til grundvallar almennt viðmið
íþróttahreyfingarinnar um stöðu íþróttamanna og flokka í
afreksstarfi. Einnig verða möguleikar einstaklinga og flokka á að
ná framförum í íþrótt sinni metið. Afreksíþróttakonur og flokkar
allra íþróttagreina sem viðurkenndar eru af ÍSÍ teljast
styrkhæfar.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að meta afrek og verkefni í
samræmi við 2. grein reglugerðar þessarar.
Stefnt skal að því að
veita styrki úr sjóðnum tvisvar sinnum á ári, í febrúar og
september ár hvert. Umsóknir skulu berast sjóðsstjórn á þar til
gerðum eyðublöðum, sem sjóðsstjórn lætur útbúa og eru aðgengileg á
heimasíðu Íslandsbanka og ÍSÍ. Einstaklingar, íþróttafélög,
héraðssambönd, íþróttabandalög og sérsambönd geta sótt um styrki úr
sjóðnum. Sjóðsstjórn er þó heimilt að hafa frumkvæði að einstaka
styrkveitingum. Umsóknir og önnur gögn skulu geymd í skjalasafni
Afrekssjóðs ÍSÍ, í vörslu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Sjóðsstjórn ber að svara skriflega öllum umsóknum sem berast
sjóðsstjórninni.
Styrkir til einstaklinga
og flokka eru fyrst og fremst til að standa undir kostnaði við
æfingar og keppni, samkvæmt framlagðri áætlun.
Skilgreindur kostnaður í umsóknum verður að tengjast viðkomandi
verkefni, t.d. ferðakostnaður, þátttaka í mótum, búningakostnaður,
æfingagjöld og annar kostnaður tengdur uppbyggingastarfi
íþróttakvenna. Greiðslufyrirkomulag styrkja verður þannig að
helmingur styrkupphæðar greiðist við styrkúthlutun og helmingur við
uppgjör til sjóðsstjórnar.
Í samræmi við gildandi
reglur skulu allar íþróttakonur eða flokkar, sem þiggja styrk úr
Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ, hlíta þeim siða- og
agareglum sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur auk reglna
um lyfjanotkun og lyfjaeftirlit. Styrkhafar úr sjóðnum skulu gæta
velsæmis í hvívetna enda miklar fyrirmyndir fyrir ungar verðandi
afrekskonur. Styrkþegi úr sjóðnum samþykkir að koma fram í
verkefnum á vegum Íslandsbanka og ÍSÍ er lúta að uppbyggilegu
hvatningar- og ímyndarstarfi aðila.
Reglugerð þessi skal
endurskoðuð árlega og samþykkt af Íslandsbanka og ÍSÍ.
Samþykkt á fundi framkvæmdastjórnar ÍSÍ 19. desember 2009.
