Afrekssjóður ÍSÍ

Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ vinnur eftir sérstökum starfsreglum sem samþykktar hafa verið af framkvæmdastjórn ÍSÍ. Allar íþróttagreinar sem eru viðurkenndar af ÍSÍ eiga rétt á að sækja um styrki úr Afrekssjóði ÍSÍ að því tilskildu :

  1. Að greinin sé aðili að alþjóðasérsambandi og að innan viðkomandi alþjóðasérsambands séu a.m.k. 30 aðildarþjóðir.
  2. Að uppfyllt séu önnur þau skilyrði sem kveðið er á um í starfsreglum Afrekssjðss.

Aðeins sérsambönd geta verið umsóknaraðilar, hvort heldur er um að ræða styrkveitingar til einstaklinga eða hópa.