Flýtileiðir
Styrktarsjóður ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna
Styrktarsjóður ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttapilta og stúlkna er samstarfsverkefni ÍSÍ og Menntamálaráðuneytisins og miðar að því að styðja við og efla íþróttaiðkun efnilegs íþróttafólks á aldrinum 15 - 18 ára.
Markmið sjóðsins er að styrkja á landsvísu efnilegt íþróttafólk, hvort heldur úr einstaklings- eða hópíþróttum, á aldrinum 15 - 18, til að ná því markmiði að verða framtíðarafreksmenn Íslands.
Aðeins sérsambönd og sérgreinanefndir geta sótt um styrkveitingar í sjóðinn. Öll íþróttafélög sem eru aðilar að ÍSÍ, geta tilnefnt einstaklinga til viðkomandi sérsambands/sérgreinanefndar sem síðan fer yfir og metur umsóknir sem sendar verða áfram til sjóðsins.