Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Íþróttahreyfingin er stærsta fjöldahreyfing á Íslandi með yfir 150 þúsund félagsmenn.
Líkt og fyrir Alþingiskosningar fyrri ára vill Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kanna afstöðu stjórnmálaflokka á Íslandi til íþróttamála og hefur nú verið sent bréf til formanna og skrifstofu allra stjórnmálaafla sem bjóða fram til Alþingis í komandi kosningum.  Óskum við eftir því að fá svör frá stjórnmálaflokkunum við eftirfarandi spurningum. Svörin verða birt hér á heimasíðu ÍSÍ til upplýsingar fyrir íþróttahreyfinguna.

  1. Hvaða stefnu hefur flokkurinn varðandi íþróttamál?
  2. Er flokkurinn reiðubúinn til að styðja og/eða standa að auknum fjárveitingum til íþróttastarfsins i landinu?
  3. Með hvaða hætti vill flokkurinn stuðla að því að öll börn og ungmenni hafi jöfn tækifæri til að taka þátt í íþróttastarfi?
  4. Með hvaða hætti vill flokkurinn efla umhverfi afreksíþrótta, s.s. gagnvart lýðréttindum afreksíþróttfólks og starfsemi sérsambanda ÍSÍ og ÍSÍ?
  5. Með hvaða hætti hyggst flokkurinn framfylgja íþróttastefnu ríkisins sem sett var fram árið 2011 og ber yfirskriftina, „Stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytisins í íþróttamálum“?
  6. Mun þinn flokkur standa vörð um Íslenska getspá sem burðarás í fjármögnun íþróttahreyfingarinnar og Öryrkjabandalags Íslands?