Íþrótt:
Judo
Judomaður ársins:
2013, 2018, 2019 og 2020
Íslandsmeistari í -81kg flokki:
2012-2019
2019 Hong Kong heimsbikarmót, 3. sæti
Fæddur:
1. september 1989
Hæð:
180 cm
Alþjóðleg mót:
2019 París Grand Slam
2019 Abu Dhabi Grand Slam
2018 Osaka Grand Slam
Heimsmeistaramót:
2018
Evrópuleikar:
2019 Minsk
2015 Bakú



Sveinbjörn Jun Iura er margfaldur Íslandsmeistari í judo, en hann keppir í -81kg flokki. Hann hefur verið kjörinn Judomaður ársins þrisvar sinnum.
Á árinu 2018 vann hann sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil er hann vann -81 kg flokkinn. Hann komst í þriðju umferð á Heimsmeistaramóti í Bakú á árinu og í 32 manna úrslit af 65 keppendum. Á Grand Slam Osaka komst hann einnig í þriðju umferð og í sextán manna úrslit af 40 keppendum. Þetta eru tvö af sterkustu mótunum í heimsbikarmótaröð Alþjóðajudosambandsins (IJF) ár hvert og þar er keppt með útsláttarfyrirkomulagi. Í báðum tilfellum var Sveinbjörn sleginn út af sigurvegara mótsins. Hann vann bronsverðlaun í -81 kg flokki á Norðurlandamóti í Danmörku og brons í liðakeppninni á sama móti.
Sveinbjörn lagði megin áherslu á að keppa á úrtökumótum fyrir Ólympíuleikana í Tókýó á árinu 2019. Bestum árangri náði Sveinbjörn þegar hann vann til bronsverðlauna á heimsbikarmóti í Hong Kong. Sveinbjörn er þriðji Íslendingurinn til þess að vinna verðlaun á heimsbikarmóti síðan núverandi kerfi komst á laggirnar árið 1993. Einnig komst Sveinbjörn í aðra umferð á stórmótunum Grand Slam París og Grand Slam Abu Dhabi og var fulltrúi Íslands á Evrópuleikunum í Minsk, enn hann tók einnig þátt árið 2015 í Bakú. Einnig varð hann þriðji á Reykjavík International Games.
Sveinbjörn er hluti af hópi íþróttafólks sem birtir pistla á vefsíðunni www.klefinn.is