Íþróttamannanefnd ÍSÍ
Íþróttamannanefnd ÍSÍ er málsvari íþróttafólks gagnvart ÍSÍ.
Hún fjallar um málefni íþróttamanna, gætir réttinda og hagsmuna þeirra, veitir álit til ÍSÍ og er tengiliður milli íþróttafólks og sambandsins. Hún hefur einnig samskipti við erlendar íþróttamannanefndir og stuðlar að jákvæðri ímynd og háttvísi íþróttamanna.