Fara í efni

Ólympíuleikar ungmenna

Um ólympíuleika ungmenna

Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára. 

Upplýsingar um keppnina

Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðinna. 

Hugmyndina á Jacues Rogge forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001. Árið 2007 var ákveðið að koma á fót Ólympíuleikum ungmenna og fóru fyrstu leikarnir fram árið 2010 í Singapore.

Markmið leikanna er að sameina besta unga íþróttafólk heims í keppni og leik við bestu hugsanlegu aðstæður. Boðið er uppá öfluga kynningu á Ólympíuhugsjóninni og áhersla lögð á að þróa menntun og mat á ólympískum gildum auk þess að ræða um þær ógnanir sem steðja að samfélaginu í dag. Þá er markmiðið að kynna enn frekar íþróttir ungmenna og efla þátttöku í íþróttastarfi á heimsvísu.

Skoða vef Alþjóðaólympíunefndarinnar um leikana 

Vetarleikar - YOWG

Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram í Innsbruck í Austurríki árið 2012. Vetrarleikarnir standa yfir að hámarki í 9 daga. Hámarksfjöldi þátttakenda á leikunum eru 970 íþróttamenn og 580 dómarar.

Fyrri leikar:

  • 2024 - Gangwon í Kóreu
  • 2020 - Lausanne í Sviss
  • 2016 - Lillehammer í Noregi
  • 2012 - Innsbruck í Austurríki

Sumarleikar - YOSG

Fyrri leikar:

  • 2016 - Buenos Aires í Argentínu
  • 2014 - Nanjing í Kína
  • 2010 - Singapore

Myndir frá leikunum