Fara í efni

Afrekssjóður ÍSÍ

Afrekssjóður ÍSÍ er lykilstoð í íslensku afreksíþróttastarfi. Sjóðurinn var stofnaður árið 1977 til að styðja íþróttafólk og sérsambönd sem ná árangri á alþjóðavettvangi.

Markmið sjóðsins

Tilgangur sjóðsins var frá upphafi að styrkja þau sérsambönd, þar sem hópar eða einstaklingar á þeirra vegum höfðu náð umtalsverðum árangri í ákveðnum alþjóðamótum, sbr. 9. gr. reglugerðar sjóðsins og í öðru lagi vegna undirbúnings að þátttöku í þessum mótum, þegar líkur væru á að góður árangur næðist.

Stjórn Afrekssjóðs

  • Þórey Edda Elísdóttir - Formaður
  • Kári Mímisson
  • Daníel Jakobsson
  • Stefán Jóhannesson
  • Birna Lárusdóttir
  • Kári Steinn Reynisson - Starfsmaður ÍSÍ