Fara í efni

Kostnaðarþátttaka ungmenna í landsliðsstarfi

Styrkveitingar vegna kostnaðarþátttöku ungmenna í landsliðsstarfi byggja á fjárframlagi mennta- og barnamálaráðuneytis skv. samningi við ÍSÍ. Meginmarkmið styrkveitinganna er að lækka kostnað vegna þátttöku ungmenna sem taka þátt í landsliðsstarfi á vegum sérsambanda ÍSÍ hvort sem kostnaðurinn fellur á ungmennin sjálf eða er borinn af sérsamböndunum að hluta eða öllu leyti. Með styrkveitingunum er jafnframt stuðlað að því að jafna tækifæri ungmenna á þátttöku í landsliðsstarfi sérsambanda ÍSÍ.

Það er í höndum sérsambanda ÍSÍ að sækja um styrkina og berast allar greiðslur Afreksmiðstöðvar Íslands vegna kostnaðarþátttöku ungmenna til viðkomandi sérsambands. Í þeim tilvikum sem ungmennin sjálf bera hluta kostnaðar er sérsamböndum skylt að verja greiðslunum til lækkunar á kostnaðarþátttöku ungmennanna og óheimilt að verja greiðslunum í önnur verkefni. Skulu sérsambönd endurgreiða ungmennum eða lækka kostnaðarþátttöku þeirra eins fljótt og unnt er. Greiðslur AMÍ til sérsambanda dreifast á tólf mánuði í samræmi við samning á milli ÍSÍ og mennta- og barnamálaráðuneytis.

Um styrkveitingar þessar gilda úthlutunarreglur sem hér má lesa:

Úthlutunarreglur vegna kostnaðarþátttöku ungmenna í landsliðsstarfi

Viðmið