Starfslaun afreksíþróttafólks og þjálfara
Starfslaun eru ætluð afreksíþróttafólki og þjálfurum til að gera þeim kleift að setja íþrótt sína í forgang og ná árangri á alþjóðavettvangi. Eins og er fá 38 afreksíþróttamenn úr fjölbreyttum greinum starfslaun sem skiptast í þrjá flokka: A, B og C.
Auk fjárhagslegs stuðnings fær íþróttafólkið einnig faglegan stuðning á sviði sálfræði, næringarfræði, mælinga og stöðumats, líkamlegrar þjálfunar og meðhöndlunar og heilsu.
Tilgangur starfslauna er að styðja við afreksíþróttafólk og þjálfara svo þeir geti helgað sig íþrótt sinni og náð árangri á heimsmælikvarða. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands annast úthlutunina í gegnum Afrekssjóð.
Skilyrði fyrir umsókn
Íþróttafólk og þjálfarar þurfa að uppfylla ákveðin grunnskilyrði til að koma til greina:
- Vera að minnsta kosti 18 ára á því ári sem sótt er um.
- Falla undir skilgreiningu ÍSÍ um framúrskarandi íþróttafólk.
- Hafa ekki gerst brotleg við reglur um lyfjamál, veðmál eða hagræðingu úrslita síðustu 3 ár.
- Hafa ekki hlotið refsidóma fyrir alvarleg ofbeldis- eða fíkniefnabrot.
Ferli umsóknar og frestir
Afreksmiðstöð Íslands auglýsir eftir umsóknum að minnsta kosti einu sinni á ári. Umsóknir skulu unnar í samstarfi við viðkomandi sérsamband. Hægt er að sækja um utan auglýsts frests ef um óvæntan árangur eða sérstök verkefni er að ræða.