Stefna ÍSÍ í almenningsíþróttum
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vill hvetja fólk til að hreyfa sig og taka þátt í íþróttum – á öllum aldri og öllum getustigum.
Markmið ÍSÍ í almenningsíþróttum
1. Efla íþróttaþátttöku innan sambandsaðila ÍSÍ
- Hvetja íþróttafélög og íþróttahéruð til að bjóða upp á fjölbreyttar íþróttir fyrir alla aldurshópa.
- Hvetja sambandsaðila til þátttöku í almenningsíþróttaverkefnum ÍSÍ.
2. Auka almenningsíþróttaþátttöku meðal landsmanna
- Verkefnin eru ætluð öllum, óháð aldri eða getustigi.
- Bjóða skemmtilegar og öruggar leiðir til að hreyfa sig daglega.
- Deila þekkingu og fræðslu um heilsueflingu og nýjungar í íþróttum.
- Styðja samstarf við sveitarfélög, íþróttahéruð og íþróttafélög í verkefninu „Heilsueflandi samfélag“.
3. Hvetja fyrirtæki og stofnanir til heilsueflingar starfsmanna
- Þátttaka í almenningsíþróttaverkefnum ÍSÍ.
- Upplýsingagjöf og ráðgjöf um heilsueflingu starfsmanna.
- Stuðningur við samstarf við íþróttahéruð eða íþróttafélög til að framkvæma heilsueflandi verkefni.
Ávinningur fyrir þig
- Bætt heilsu og vellíðan í daglegu lífi.
- Fjölbreytt og aðgengileg tækifæri til hreyfingar fyrir alla.
- Tækifæri til að taka þátt í verkefnum með vinum, vinnufélögum og skólasamfélaginu.