Að taka á móti frásögn
Leiðbeiningar þessar eru ætlaðar starfsfólki, stjórnendum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og öðrum innan íþróttafélags sem einstaklingur leitar til vegna ofbeldis, áreitni, eineltis, vanrækslu eða annarrar óviðeigandi hegðunar í íþróttastarfi.
Fyrstu viðbrögð skipta miklu. Markmiðið er að taka á móti frásögninni af nærgætni, tryggja öryggi og hjálpa viðkomandi að koma málinu í réttan farveg. Sá sem tekur við frásögn á ekki að rannsaka málið eða reyna að komast að niðurstöðu um það sem gerðist.
Sex mikilvæg skref
- Hlustaðu og taktu frásögnina alvarlega
Gefðu viðkomandi næði og nægan tíma til að segja frá. Haltu ró þinni, hlustaðu án þess að grípa fram í og þakkaðu fyrir traustið. Ekki biðja um meiri smáatriði en nauðsynleg eru til að meta öryggi og ákveða næstu skref. - Athugaðu hvort hætta sé yfirvofandi
Kannaðu hvort viðkomandi eða aðrir séu í bráðri hættu eða þurfi tafarlausa heilbrigðis- eða lögregluaðstoð. Ef hætta er yfirvofandi skal hringja strax í 112.
Ef grunur er um refsivert brot skal upplýsa um möguleikann á að fá ráðgjöf hjá lögreglu eða leggja fram kæru. Ekki þrýsta á viðkomandi um ákveðna ákvörðun nema bregðast þurfi við bráðri hættu eða lögbundinni tilkynningarskyldu. - Útskýrðu trúnað og takmörk hans
Farðu með upplýsingar af fyllsta trúnaði og miðlaðu þeim aðeins til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Ekki lofa algjörum trúnaði. Nauðsynlegt getur verið að miðla upplýsingum ef barn á í hlut, einstaklingur eða aðrir eru í hættu eða önnur lagaskylda krefst þess. Skráðu nauðsynlegar upplýsingar
Skráðu frásögnina hlutlægt og eins fljótt og hægt er, með vitneskju þess sem segir frá.Skráðu:
- hvenær og hvar samtalið fór fram;
- hver voru viðstödd;
- helstu atriði frásagnarinnar, helst með eigin orðum viðkomandi;
- hvort talin sé hætta á frekara ofbeldi eða áreitni;
- hvaða upplýsingar og næstu skref voru rædd;
- hvaða ráðstafanir voru gerðar
Varðveittu gögnin á öruggan hátt og tryggðu að aðeins þeir sem þurfa á þeim að halda hafi aðgang.
- Leiðbeindu um réttan farveg
Upplýstu um samskiptaráðgjafa, barnaverndarþjónustu, lögreglu eða aðra viðeigandi aðila eftir eðli málsins. Aðstoðaðu viðkomandi við að hafa samband eða skrá tilkynningu ef þess er óskað og það samræmist lögbundnum skyldum. - Veittu áframhaldandi stuðning
Spurðu hvað viðkomandi þurfi til að upplifa öryggi. Útskýrðu næstu skref, hver verði tengiliður og hvenær upplýsinga sé næst að vænta. Ekki lofa ákveðinni niðurstöðu eða tímaramma sem ekki er hægt að standa við.
Þegar barn á í hlut
Barn er einstaklingur yngri en 18 ára.
Öllum er skylt að tilkynna til barnaverndar ef ástæða er til að ætla að barn:
- búi við óviðunandi uppeldisaðstæður;
- verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi; eða
- stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Ekki þarf fulla vissu áður en tilkynnt er. Ekki skal tefja tilkynningu meðan beðið er eftir samþykki barns eða forsjáraðila eða meðan félagið aflar frekari gagna.
Ef barn er í bráðri hættu skal hringja í 112. Annars skal tilkynna til barnaverndar í viðkomandi sveitarfélagi. Æskilegt er að tilkynnt sé í nafni íþróttafélagsins. Samskiptaráðgjafi getur jafnframt leiðbeint um viðbrögð og áframhaldandi stuðning.
Það sem á ekki að gera
Sá sem tekur á móti frásögn skal ekki:
- gera lítið úr málinu eða draga frásögnina í efa;
- kenna viðkomandi um það sem gerðist eða spyrja ásakandi eða leiðandi spurninga;
- krefjast þess að viðkomandi segi fleiri frá en nauðsynlegt er;
- hafa samband við þann sem kvartað er yfir eða standa fyrir sáttamiðlun;
- hefja eigin rannsókn, yfirheyra eða afla frekari gagna;
- lofa algjörum trúnaði eða deila upplýsingum með óviðkomandi; eða
- þrýsta á viðkomandi um að leggja fram kæru, nema bregðast þurfi við lögbundinni tilkynningarskyldu eða bráðri hættu.
Meginreglan: Hlustaðu, taktu frásögnina alvarlega, tryggðu öryggi, gættu trúnaðar og hjálpaðu viðkomandi að komast í samband við rétta fagaðila.
Hér má finna ítarlegri leiðbeiningar um móttöku frásagna af ofbeldi, áreitni eða einelti í íþróttastarfi.