Að þekkja óæskilega hegðun
Skýr hugtök auðvelda fólki að þekkja óæskilega hegðun og átta sig á því hvenær ástæða er til að leita aðstoðar eða bregðast við. Skilgreiningarnar hér eru stuttar og byggja á stefnu ÍSÍ um verndun og velferð.
Óæskileg hegðun getur verið líkamleg, orðbundin, félagsleg eða stafræn. Hún getur verið augljós eða falin og átt sér stað milli iðkenda, starfsfólks, þjálfara, sjálfboðaliða, stjórnenda eða annarra sem tengjast starfinu.
Ofbeldi
Hvers kyns hegðun sem leiðir til eða getur leitt til líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennd svipting frelsis.
Líkamlegt ofbeldi
Þegar líkamlegu afli er beitt gegn öðrum einstaklingi, hvort sem líkamlegur skaði hlýst af eða ekki. Dæmi um líkamlegt ofbeldi er að kýla, kyrkja, sparka, klóra, bíta og toga í hár.
Andlegt ofbeldi
Getur verið í formi orðaskipta, líkamstjáningar eða hunsunar. Dæmi um andlegt ofbeldi eru samskipti sem einkennast af niðurlægingu, markvissu niðurbroti einstaklings, ómanneskjulegri framkomu, ofsóknum, öskri, hótunum, ógnum, útilokun eða langvarandi þögn. Andlegt ofbeldi er oft notað til að stjórna öðrum.
Stafrænt ofbeldi
Þegar ofbeldi er beitt í gegnum síma, tölvu, samfélagsmiðla eða á annan stafrænan hátt. Slíkt ofbeldi getur meðal annars falið í sér áreitni, hótanir, dreifingu á persónulegum gögnum, ljósmyndum eða myndböndum án samþykkis.
Dæmi um stafrænt kynferðisofbeldi er þegar teknar eru myndir af fáklæddum eða nöktum einstaklingi án vitundar hans og þær birtar eða þeim dreift, að senda óviðeigandi kynferðislegt myndefni í óþökk viðkomandi, að falsa kynferðislegt myndefni af öðrum eða senda áfram mynd sem einstaklingur hefur sent í trúnaði.
Kynbundið ofbeldi
Ofbeldi á grundvelli kyns sem leiðir til eða gæti leitt til líkamlegs, kynferðislegs eða sálræns skaða eða þjáningar þess sem fyrir því verður, en einnig hótun um slíkt ofbeldi, þvingun eða handahófskennd svipting frelsis, bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi.
Kynferðislegt ofbeldi
Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.
Sem dæmi má nefna óvelkomna snertingu, káf eða þukl utan klæða sem innan og nauðgun. Orðbragð sem er klámfengið eða klúrt og hótanir um að beita kynferðislegu ofbeldi.
Áreiti
Áreitni er óvelkomin hegðun sem misbýður virðingu þess sem fyrir henni verður og skapar ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæður.
Kynbundin áreitni
Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi. - 2 - Dæmi um slíkt getur t.d. verið að gera lítið úr afrekum kvenna í íþróttum eða kalla einstakling homma í þeim tilgangi að niðurlægja viðkomandi.
Kynferðisleg áreitni
Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu þess sem fyrir henni verður, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg. Eitt tilvik getur talist kynferðisleg áreitni ef það er alvarlegt.
Einelti
Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa, hunsa eða ógna viðkomandi eða valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.
Neteinelti
Neikvætt áreiti af ásettu ráði af einum aðila eða hópi fólks gagnvart öðrum einstaklingi með rafrænum hætti. Um er að ræða áreiti sem getur falið í sér valdaójafnvægi og misbeitingu á valdi í gegnum hvers konar upplýsinga- og samskiptatækni.
Vanræksla
Skortur á nauðsynlegri umönnun og aðbúnaði barns sem getur leitt til skaða eða er líklegur til að leiða til skaða varðandi þroska þess. Vanrækslu er hægt að flokka í tilfinningalega vanrækslu, líkamlega vanrækslu eða vanrækslu varðandi umsjón og eftirlit eða nám. Að öllu jöfnu telst það ekki vanræksla þegar þörfum barns er ekki sinnt nógu vel í einstaka skipti. Þegar umönnun barns er endurtekið ábótavant flokkast það sem vanræksla.
Busun
Móðgandi vígsluathafnir sem hafa oft kynferðislegar hliðar þar sem nýliðar eru skotmörk liðsfélaga. Með busun eru nýir liðsmenn „vígðir” inn í lið eða hóp og verða eftir busun samþykktir sem fullgildir meðlimir. Busun á sér oft stað þar sem skortur er á eftirliti fullorðinna, í tengslum við áfengisneyslu og felur oft í sér óæskilega kynferðislega virkni.
Tæling
Þegar einstaklingur í valdastöðu beitir mismunandi aðferðum til að byggja upp traust hjá viðkvæmum aðila með skipulögðum hætti í þeim tilgangi að venja viðkomandi við skaðlega/óæskilega hegðun með kynferðislega misnotkun að markmiði. Tæling getur átt sér stað yfir langan tíma, jafnvel nokkur ár. Algengt er að fólk noti netið til að tæla einstakling eða reyni að öðlast traust hjá aðilum nákomnum viðkomandi. Það eykur líkur á því að gerandinn geti hitt viðkomandi í einrúmi án þess að aðrir hafi áhyggjur.
Misnotkun (e. exploitation)
Með misnotkun í tengslum við íþróttastarf er átt við að einstaklingur í viðkvæmri stöðu verði fyrir ósanngjörnum kröfum eða sé settur í aðstæður sem geta haft neikvæð áhrif á líðan hans eða velferð. Sem dæmi um slíkt eru smánarlega lág laun fyrir mikið framlag, óhóflegt æfingaálag á kostnað andlegrar og líkamlegrar heilsu, ósanngjarnir samningar o.fl. Undir misnotkun fellur einnig kynferðisleg misnotkun (e. sexual exploitation) þar sem t.d. manneskja í valdastöðu býður iðkanda betri kjör, sæti í liði, betri þjónustu eða annað í staðinn fyrir kynferðislegan greiða.