Fara í efni
Verndun og velferð í íþróttum

Fá hjálp eða tilkynna atvik

Hvert á að leita

Þú getur leitað aðstoðar hvort sem atvik varðar þig, liðsfélaga, iðkanda eða annan einstakling innan íþróttahreyfingarinnar. Þú getur einnig haft samband ef þú varðst vitni að atviki eða ert óviss um hvert eigi að beina málinu.

Aðstæður Viðbrögð

Einstaklingur er í bráðri hættu eða þarf tafarlausa aðstoð

Hringdu í 112 eða notaðu netspjall 112.

Grunur er um að barn búi við óviðunandi aðstæður, verði fyrir ofbeldi eða vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu

Tilkynntu málið til barnaverndar.

Málið varðar ofbeldi, áreitni eða misnotkun í tengslum við skipulagt íþróttastarf

Leitaðu til samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Málið virðist vera samskiptavandi eða mögulegt einelti

Beindu málinu fyrst til viðkomandi félags. Reynist um einelti að ræða skal tilkynna samskiptaráðgjafa.

Málið varðar almenna starfsemi félags, svo sem liðsval, fjármál eða aðstöðu

Hafðu samband við viðkomandi félag.

Þú ert óviss eða telur ekki öruggt eða viðeigandi að leita fyrst til félagsins

Fáðu ráðgjöf hjá samskiptaráðgjafa.

Hafa samband við samskiptaráðgjafa

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs er óháður aðili sem veitir ráðgjöf og stuðning án endurgjalds. Ef þú hefur orðið fyrir ofbeldi, áreitni eða einelti í tengslum við íþróttaiðkun þína getur þú tilkynnt það til samskiptaráðgjafa með eftirfarandi hætti:

Trúnaður og persónuupplýsingar

Samskiptaráðgjafi er bundinn þagnarskyldu. Trúnaðurinn er þó ekki algjör, nauðsynlegt getur verið að miðla upplýsingum áfram á grundvelli lögbundinnar tilkynningarskyldu.

Ferli hjá samskiptaráðgjafa

Í kjölfar tilkynningar fer eftirfarandi ferli af stað:

  1. Samskiptaráðgjafi býður viðtal og finnur tíma í samráði við þig;
  2. viðtal fer fram og frekari upplýsinga aflað
  3. Framhald málsins er ákveðið út frá upplýsingum sem koma fram í viðtalinu og óskum þínum.
  4. Samskiptaráðgjafi hefur samband við fleiri aðila málsins ef þörf er á því og í samráði við þig.
  5. Samskiptaráðgjafi aðstoðar þig við að koma málinu í ferli ef það er þín ósk.
  6. Samskiptaráðgjafi gefur út leiðbeinandi álit til málsaðila ef þess er þörf.
  7. Samskiptaráðgjafi fylgir málum eftir sé þess þörf með því að kanna eftir ákveðinn tíma hvort úrbætur hafi átt sér stað.

Ferlið getur þó verið misjafnt þar sem það tekur alltaf mið af eðli málsins, þeim upplýsingum sem liggja fyrir, óskum þess sem leitar aðstoðar og lögbundnum skyldum.

Önnur erindi til íþróttafélags

Almennum ábendingum og kvörtunum um starfsemi félags skal að jafnaði beina til félagsins sjálfs. Dæmi um önnur erindi má nefna:

  • samskiptavandi sem felur ekki í sér einelti, áreitni eða ofbeldi;
  • óánægja með ákvarðanir félagsins eða val í lið;
  • athugasemdir um fjármál;
  • athugasemdir um æfinga- eða keppnisaðstöðu; og
  • mismunun eða önnur réttindamál sem félaginu ber að taka til skoðunar.

Ef mismunun tengist jafnframt áreitni, ofbeldi eða annarri sambærilegri háttsemi, eða þú ert óviss um flokkun málsins, skaltu leita ráðgjafar hjá samskiptaráðgjafa.