Viðbrögð og ábyrgð félags

Íþróttafélag ber ábyrgð á að bregðast við málum sem koma upp í starfsemi þess. Viðbrögðin ráðast af eðli og alvarleika viðkomandi máls.
Það á alltaf að bregðast við
Fái starfsmaður, stjórnandi, þjálfari eða sjálfboðaliði upplýsingar um ofbeldi, áreitni, mismunun, einelti, vanrækslu eða misnotkun skal hann bregðast við og koma málinu í réttan farveg.
Félagið á ekki að rannsaka mögulegt refsivert brot eða barnaverndarmál. Það þarf hins vegar að meta hvort ástæða sé til tafarlausra viðbragða og getur gripið til tímabundinna ráðstafana á meðan þar til bær yfirvöld eða fagaðilar vinna málið.
Fyrstu skref félagsins
- Tryggja öryggi og kalla til neyðaraðstoð ef þörf er á.
- Meta hvort lögbundin tilkynningarskylda til barnaverndar sé fyrir hendi.
- Skrá nauðsynlegar upplýsingar á hlutlægan og öruggan hátt.
- Leita leiðbeininga hjá samskiptaráðgjafa eða barnavernd.
- Ákveða tímabundnar innri ráðstafanir og skrá forsendur þeirra.
- Upplýsa viðkomandi, eftir því sem heimilt er, um næstu skref og áætlaða eftirfylgni.
Möguleg viðbrögð
Eftir eðli máls geta viðbrögð félag meðal annars falist í að:
- eiga samtöl við hlutaðeigandi aðila án þess að ganga inn á hlutverk rannsóknaraðila;
- breyta verklagi eða starfsháttum félagsins;
- biðjast afsökunar;
- breyta ábyrgð, verkefnum eða aðgangi starfsmanns eða sjálfboðaliða;
- aðgreina iðkendur eða gera aðrar tímabundnar ráðstafanir til að tryggja öryggi;
- takmarka þátttöku einstaklings tímabundið; eða
- beita viðurlögum eða útilokun á grundvelli laga félagsins að lokinni réttlátri málsmeðferð.
Við val á viðbrögðum þarf að gæta að öryggi, meðalhófi, trúnaði og réttindum allra sem málið varðar. Tímabundin öryggisráðstöfun er ekki niðurstaða um ábyrgð einstaklings.
Íþyngjandi ákvarðanir
Ef viðbrögð fela í sér viðurlög, útilokun eða aðrar íþyngjandi ákvarðanir skal fylgja samþykktum reglum félagsins og leiðbeiningum ÍSÍ um málsmeðferð. Málsmeðferðin þarf, eftir því sem við á, að tryggja:
- skýrar og málefnalegar forsendur;
- rétt aðila til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri;
- óhlutdræga meðferð;
- meðalhóf;
- skriflega niðurstöðu og upplýsingar um mögulegar kæruleiðir, ef þær eru fyrir hendi.
Hér má nálgast ítarlegri leiðbeiningar um málsmeðferð vegna viðurlaga.
Samstarf við samskiptaráðgjafa
Samskiptaráðgjafi getur leiðbeint félaginu um vinnslu máls, öryggisráðstafanir og úrbætur. Félaginu og starfsmönnum þess ber að veita ráðgjafanum þær upplýsingar sem hann metur nauðsynlegar vegna lögbundins hlutverks síns.
Telji félagið sig ekki geta farið að leiðbeiningum samskiptaráðgjafa skal upplýsa ráðgjafann um það. Ef viðunandi lausn finnst ekki skal félagið upplýsa ÍSÍ og UMFÍ um það á netfangið isi@isi.is.