Fara í efni
Andleg heilsa

Sálfræði í íþróttum

Íþróttafólk sem tileinkar sér hugræna færni er betur í stakk búið til að takast á við mótlæti í æfingum og keppni.

Mótlæti getur verið:

  • líkamlegt, til dæmis meiðsli eða mikið álag
  • andlegt, til dæmis takmarkaður spiltími eða samskiptaerfiðleikar

Markviss andleg undirbúningur hjálpar íþróttafólki að takast á við erfiða leiki, mót og andstæðinga. Hugræn þjálfun er því lykilþáttur í heildrænni þjálfun.