Einelti í íþróttum
Einelti getur átt sér stað nánast hvar sem er og þar af leiðandi einnig innan íþróttahreyfingarinnar.
Iðkendur skipta máli
Áhrifaríkasta leið íþróttafélags til að vinna gegn einelti eru iðkendurnir sjálfir.
Þótt flest taki ekki þátt í einelti vita þau oft af því áður en fullorðnir fá upplýsingar. Mikilvægt er að virkja þennan hóp til að:
- taka afstöðu gegn einelti
- láta vita ef þau verða vitni að því
- leita til forráðamanna eða starfsfólks íþróttamannvirkis
Trúnaður og nafnleynd þurfa að vera tryggð svo börn og ungmenni treysti sér til að segja frá.
Þjálfun og forvarnir
Æskilegt er að starfsfólk íþróttafélaga fái þjálfun í að þekkja einkenni eineltis og bregðast rétt við.
Í Aðgerðaráætlun gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun má finna:
- skilgreiningu á einelti
- dæmi um helstu birtingarmyndir
- fyrirbyggjandi aðgerðir
- tillögur að verklagsreglum
Íþróttafélög geta aðlagað reglurnar að eigin starfsemi og nýtt þær sem verkfæri í daglegu starfi.
Hvað á að gera ef grunur vaknar?
Ef grunur leikur á einelti eða annarri óæskilegri hegðun ætti að taka málið fyrir strax.
Mælt er með að á vefsíðu félags sé:
- skýrt tilkynningarblað
- einföld leið til að koma ábendingum á framfæri
Tilkynna einelti
Einnig er hægt að senda tilkynningu í gegnum vefsíðu samskiptaráðgjafa íþróttahreyfingarinnar hér: https://www.samskiptaradgjafi.is/tilkynningaform