Fara í efni
Fræðslubæklingar

Íþróttir - barnsins vegna

Sumarið er góður tími fyrir alla fjölskylduna að vera saman – í leik og hreyfingu.

Það þarf ekki að vera flókið – einfaldar stundir eins og að fara saman í sund, út að leika eða njóta útiveru, skapa góðar minningar og styrkja tengsl innan fjölskyldunnar. 
Með því að hvetja börn til að leika sér og prófa sig áfram í alls konar hreyfingu má jafnframt kveikja og efla áhuga þeirra á íþróttum – á þeirra eigin forsendum. 

Slík nálgun er í góðu samræmi við áherslur ÍSÍ um að börn njóti sín í íþróttum þar sem gleði og þátttaka eru í forgrunni. Hér er hægt að lesa um áherslur ÍSÍ um börn íþróttum í eftirfarandi Issu fræðslubæklingi