Jafnréttismál
Jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun
Jafnrétti er mikilvægt leiðarljós í öllu íþróttastarfi. Til að styðja við markvissa vinnu að jafnréttismálum hefur ÍSÍ, í samstarfi við Jafnréttisstofu, útbúið jafnréttisáætlun fyrir íþróttafélög. Jafnréttisáætlun er mikilvægt verkfæri sem nýtist við að efla jafnrétti, stuðla að jöfnum tækifærum og vinna gegn mismunun. Í áætluninni eru sett fram markmið og aðgerðir sem styðja við skipulega og árangursríka framkvæmd jafnréttismála. Öllum sambandsaðilum og íþróttafélögum innan ÍSÍ stendur til boða að nýta áætlunina og hvetur ÍSÍ allar einingar hreyfingarinnar til að innleiða hana í starfsemi sína.
Samþykkt Jafnréttisáætlun íþróttafélaga ( niðurhal)