Hagnýt gögn fyrir leiðtoga í íþróttahreyfingunni
Hlutverk aðalstjórnar íþróttafélags
Hlutverk aðalstjórnar íþróttafélags
Aðalfundur fer með æðsta vald í félagi en aðalstjórn er falið það milli aðalfunda og ber því ábyrgð á starfi og fjárhag félagsins í heild. Aðalstjórn er kjörin á aðalfundi og vinnur að hagsmunum félagsins í umboði félagsmanna. Í lögum félags kemur fram hvernig stjórn er skipuð og í sumum tilfellum hvaða hlutverkum ólík embætti innan stjórnar gegna.