Fara í efni
Hagnýt gögn fyrir leiðtoga í íþróttahreyfingunni

Sækja um að verða Fyrirmyndarfélag

Félög og deildir geta sótt um viðurkenninguna hjá ÍSÍ ef þau uppfylla skilgreind skilyrði. Viðurkenningin gildir í fjögur ár.

Ávinningur

Handhafar viðurkenningar hafa samþykkt stefnur og viðbragðsáætlanir í öllum helstu málaflokkum:

  • fræðslu og forvarnir

  • jafnréttismál

  • umhverfismál og félagsmál

  • persónuvernd og siðareglur

Fjölbreytt markmið og skýrar stefnur tryggja að allir sem koma að starfinu vinni að sama takmarki og styrkja félagið. Auk þess gera sveitarfélög sífellt meiri kröfur um að félög hafi þessa viðurkenningu.

ÍSÍ hvetur öll félög, stór og smá, til að sækja um og stuðla þannig að faglegra og skipulagðara íþróttastarfi.

Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á Stjórnsýslusviði ÍSÍ 

Umsókn

Gátlisti yfir þau atriði sem Fyrirmyndarfélög þurfa að uppfylla til að geta sótt um viðurkenningu. Félag þarf að vinna handbók, með hliðsjón af gátlista, og nýtir til þess leiðbeinandi gögn frá ÍSÍ.

Gátlisti með greinargerð

Handbókin - leiðbeiningar félags ogd deilda

Sýnishandbók

Þegar félag hefur uppfyllt þau atriði sem koma fram í gátlista ÍSÍ þá sendir félagið formlega umsókn um viðurkenninguna til ÍSÍ ásamt fylgigögnum, undirritaðri af forsvarsmanni félagsins og ósk um dagsetningu afhendingar.

Athugið að félag getur hvenær sem er í ferlinu sent hluta gagna til yfirlesturs hjá ÍSÍ eða borið undir ÍSÍ mál sem þarfnast umræðu eða yfirferðar.

Umsókn félagsins og fylgigögn eru lesin yfir á Stjórnsýslusviði ÍSÍ og ef skilyrði eru uppfyllt þá fer umsóknin til afgreiðslu hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Gott er að tengja afhendingu viðurkenningar við viðburði á vegum félagsins til að auka sýnileika og koma á framfæri þessu mikilvæga skrefi sem félagið hefur tekið. Góður fyrirvari eykur líkur á því að hægt verði að verða við óskum félagsins.

Við afhendingu fær félagið innrammaða viðurkenningu ásamt fána Fyrirmyndarfélaga. Auk þess fær félagið merki verkefnisins sent á stafrænu formi til notkunar í starfi félagsins, s.s. á heimasíðu, á bréfsefni og í auglýsingum.

Að lokinni afhendingu þá eru nokkur atriði sem ÍSÍ leggur áherslu á og lúta að sýnileika og upplýsingagjöf, ásamt heimildum varðandi merki verkefnisins og fána, sjá nánar hér:

Það er mikilvægt að allir sem starfa innan félagsins, sem og iðkendur/félagsmenn, sjálfboðaliðar og forsjáraðilar séu meðvitaðir um viðurkenninguna og hvað í henni felst. Með viðurkenningunni er verið að senda skilaboð út í samfélagið um að félagið starfi af fagmennsku og að innan félagsins séu ferlar og stefnur til að styðjast við og fylgja í starfinu.

Viðurkenningin gildir til fjögurra ára í senn en félagið skal engu að síður senda inn árlega til ÍSÍ uppfærða handbók og eftir atvikum fylgigögn til yfirferðar og samþykktar. Huga þarf að umsókn um endurnýjun viðurkenningarinnar í tíma til ÍSÍ svo að samfella náist í gildistíma viðurkenningarinnar.

Ef viðurkenning fellur úr gildi þá þarf félagið umsvifalaust að fjarlægja merki Fyrirmyndarfélaga af sínum miðlum og gæta að því að fáni og merki séu ekki nýttir áfram í starfi félagsins þar til umsókn um viðurkenninguna hefur verið samþykkt að nýju.

Eftir viðtöku viðurkenningar, leiðbeiningar félaga/deilda