Fara í efni
Hagnýt gögn fyrir leiðtoga í íþróttahreyfingunni

Sækja um að verða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

Íþróttahéruð geta sótt um viðurkenninguna hjá ÍSÍ ef þau uppfylla skilyrði á gátlista Fyrirmyndarhéraða. Viðurkenningin gildir í fjögur ár.

Ávinningur og stefnur

Viðurkenningunni fylgja ýmsir kostir, meðal annars:

  • skýrt skipurit og hlutverk stjórnar og starfsmanna

  • stefnur í fræðslu, forvörnum, jafnrétti, umhverfi og félagsmálum

  • persónuverndarstefna og siðareglur

ÍSÍ hvetur héruð til að sækja um og styrkja þannig faglegt starf innan íþróttahreyfingarinnar.

Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á Stjórnsýslusviði ÍSÍ 

Umsókn

Gátlisti yfir þau atriði sem Fyrirmyndarhéruð þurfa að uppfylla til að geta sótt um viðurkenningu. Hérað þarf að vinna handbók, með hliðsjón af gátlista, og nýtir til þess leiðbeinandi gögn frá ÍSÍ.

Gátlisti fyrir Fyrirmyndarhéruð

Handbókin - leiðbeiningar íþróttahéraðs

Þegar félag hefur uppfyllt þau atriði sem koma fram í gátlista ÍSÍ þá sendir héraðið formlega umsókn um viðurkenninguna til ÍSÍ ásamt fylgigögnum, undirritaðri af forsvarsmanni héraðsins og ósk um dagsetningu afhendingar. Athugið að hérað getur hvenær sem er í ferlinu sent hluta gagna til yfirlesturs hjá ÍSÍ eða borið undir ÍSÍ mál sem þarfnast umræðu eða yfirferðar. 

Umsókn félagsins og fylgigögn eru lesin yfir á Stjórnsýslusviði ÍSÍ og ef skilyrði eru uppfyllt þá fer umsóknin til afgreiðslu hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Gott er að tengja afhendingu viðurkenningar við viðburði á vegum héraðsins til að auka sýnileika og koma á framfæri þessu mikilvæga skrefi sem félagið hefur tekið. Góður fyrirvari eykur líkur á því að hægt verði að verða við óskum félagsins.

Við afhendingu fær héraðið innrammaða viðurkenningu ásamt auglýsingagardínu með áprentuðu merki viðkomandi héraðs og titlinum Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Auk þess fær félagið merki verkefnisins sent á stafrænu formi til notkunar í starfi héraðsins, s.s. á heimasíðu, á bréfsefni og í auglýsingum.

Að lokinni afhendingu þá eru nokkur atriði sem ÍSÍ leggur áherslu á og lúta að sýnileika og upplýsingagjöf, ásamt heimildum varðandi merki verkefnisins og fána, sjá nánar hér:

Það er mikilvægt að allir sem starfa innan héraðsins, sem og iðkendur/félagsmenn, sjálfboðaliðar og forsjáraðilar séu meðvitaðir um viðurkenninguna og hvað í henni felst. Með viðurkenningunni er verið að senda skilaboð út í samfélagið um að héraðið starfi af fagmennsku og að innan héraðsins séu ferlar og stefnur til að styðjast við og fylgja í starfinu.

Viðurkenningin gildir til fjögurra ára í senn en héraðið skal engu að síður senda inn árlega til ÍSÍ uppfærða handbók og eftir atvikum fylgigögn til yfirferðar og samþykktar. Huga þarf að umsókn um endurnýjun viðurkenningarinnar í tíma til ÍSÍ svo að samfella náist í gildistíma viðurkenningarinnar.

Ef viðurkenning fellur úr gildi þá þarf héraðið umsvifalaust að fjarlægja merki Fyrirmyndarhéraða af sínum miðlum og gæta að því að fáni og merki séu ekki nýttir áfram í starfi héraðsins þar til umsókn um viðurkenninguna hefur verið samþykkt að nýju.

Eftir viðtöku viðurkenningar, leiðbeiningar fyrir héruð