Fara í efni

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýsstarfs

Þú getur leitað til samskiptaráðgjafa ef þú hefur upplifað eða orðið vitni að:

  • Andlegu ofbeldi

  • Líkamlegu ofbeldi

  • Kynferðislegu ofbeldi eða áreitni

  • Einelti

  • Annarri misbeitingu eða misrétti

Þjónustan er gjaldfrjáls og þú getur leitað án þess að óttast afleiðingar.

Um samskiptaráðgjafa

Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem starfar á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Embættið er ekki hluti af íþrótta- eða æskulýðshreyfingunni.

Markmiðið er að:

  • auka öryggi í íþrótta- og æskulýðsstarfi

  • tryggja að allir geti tekið þátt án ótta

  • veita stuðning og leiðbeiningar þegar upp koma alvarleg mál

  • Önnur sambærileg tilvik

Fyrir hvern 

Þjónustan stendur öllum til boða sem taka þátt í skipulögðu íþrótta- eða æskulýðsstarfi á Íslandi:

  • Börnum og ungmennum

  • Fullorðnum iðkendum

  • Þjálfurum og starfsfólki

  • Foreldrum og forráðamönnum

Hafa samband

Þú getur haft samband á þann hátt sem hentar þér:

Svarað verður eins fljótt og auðið er. Þjónustan er gjaldfrjáls.

Samskiptaráðgjafi er með aðsetur í Domus Mentis – Geðheilsustöð í Reykjavík.

Hvernig þjónustan virkar

  • Eftir fyrstu samskipti er boðið upp á viðtal ef málið varðar áreitni, ofbeldi eða einelti
  • Upplýsingar eru sóttar og næstu skref ákveðin í samráði við þann sem leitar til ráðgjafa
  • Þú getur einnig leitað ráðgjafar án þess að halda áfram með málið

Hlutverk samskiptaráðgjafa

  • Veita stuðning og leiðbeiningar

  • Aðstoða einstaklinga sem telja sig hafa orðið fyrir ofbeldi eða misrétti

  • Koma á samræmdum viðbragðsáætlunum á landsvísu

  • Miðla fræðslu og upplýsingum

Starfinu sinna fagaðilar með sérþekkingu á málaflokknum.

Verkfæri og viðbragðsáætlanir

Á vefsíðu samskiptaráðgjafa má finna: