Fara í efni

Þjálfaramenntun ÍSÍ

Þjálfaramenntun ÍSÍ veitir réttindi til íþróttaþjálfunar. Námið er fyrir þjálfara í öllum íþróttagreinum og er byggt upp í skýrum áföngum.

Fyrir hvern er námið?

Þjálfaramenntun ÍSÍ er fyrir þau sem:

  • vilja starfa sem íþróttaþjálfari
  • eru 16 ára eða eldri. Aldurstakmörk eru mismunandi eftir stigum.
  • vilja byggja upp faglega þekkingu í þjálfun

Aldurstakmörk eftir stigum

  • 1. stig: 16 ára og eldri
  • 2. stig: 18 ára og eldri
  • 3. stig: 20 ára og eldri

Uppbygging námsins

Námið er áfangaskipt og samræmt fyrir allar íþróttagreinar.

  • Þrjú stig: 1., 2. og 3. stig
  • Almenni hlutinn er kenndur af ÍSÍ í fjarnámi
  • Sérgreinahlutinn er kenndur af viðkomandi sérsambandi

Námi á hverju stigi lýkur þegar báðum hlutum er lokið. Til að halda áfram í námi þurfa þjálfarar að hafa:

  • gilt skyndihjálparnámskeið
  • viðeigandi þjálfunarreynslu

Fyrirkomulag og tímasetningar

Almenni hlutinn fer fram í fjarnámi. Námið er í boði þrisvar á ári:

  • vor
  • sumar
  • haust

Námsgjöld

Fyrirmyndarfélög og deildir fá 5.000 króna afslátt fyrir hvern þjálfara.

  • 1. stig: 36.000 krónur – Bókin Þjálffræði er innifalin
  • 2. stig: 30.000 kr.ónur
  • 3. stig: 40.000 krónur

Skráning í þjálfaramenntun ÍSÍ

Skráning fer fram í Abler og er auglýst með góðum fyrirvara.

Skráning í þjálfaramenntun ÍSÍ

Nánar um þjálfaramenntun

Lengd náms

Átta vikna fjarnám.

Inntökuskilyrði

  • Lágmarksaldur: 16 ár
  • Grunnskólapróf

Hæfni að námi loknu

Að loknu 1. stigi getur þjálfari skipulagt og stjórnað æfingatímum fyrir börn og unglinga á byrjendastigi.

Þjálfari hefur þá:

  • grundvallarþekkingu á líkamlegum, andlegum og félagslegum þroska barna og unglinga
  • þekkingu á starfsemi líkamans
  • skilning á helstu kennsluaðferðum
  • grunnþekkingu á tækni, leikfræði og reglum í viðkomandi íþróttagrein

Uppbygging náms

Námið skiptist jafnt í:

  • Almennan hluta 50%
  • Sérgreinahluta 50%

Heildarumfang er 120 kennslustundir:

  • 60 kennslustundir í almennum hluta
  • 60 kennslustundir í sérgreinahluta

Skipulag náms

Almennur hluti er allur í fjarnámi, án staðbundinna lota.

Nám er í boði:

  • á vorönn
  • á sumarönn
  • á haustönn

Almennur hluti 50%

Námið er að mestu bóklegt, með verklegum þáttum þar sem við á.

Helstu efnisþættir

  • Hlutverk þjálfarans
    Framkoma, samskipti við börn og fullorðna, stjórnun, stefnuyfirlýsingar ÍSÍ og skipulag íþróttahreyfingarinnar.
  • Kennsluaðferðir
    Tæknikennsla, jákvæð og neikvæð gagnrýni, skipulagning og framvinda kennslu.
  • Þroski barna og unglinga
    Líkamlegur, sálrænn og félagslegur þroski, fatluð börn og börn með sérþarfir.
  • Starfsemi líkamans
    Vöðvar, heiti þeirra og virkni, og fleira

Námsmat

  • Verkefni
  • Lokaverkefni
  • Úttekt á æfingum

Náms- og kennslugögn

  • Gjerset, Haugen, Holmstad o.fl. Þjálffræði. Iðnú, 2020
  • ICK-námsefni
  • Bæklingar og/eða ítarefni frá kennara
  • Myndbönd og greinar af neti

Námsgögn eru innifalin í námskeiðsgjaldi 1. stigs.

Sérgreinahluti (50%)

Sérgreinahluti er að mestu verklegur (60–70%). Öll framkvæmd er á ábyrgð viðkomandi sérsambands ÍSÍ.

Efnisþættir

  • Tækni
  • Leikfræði og taktík
  • Skipulag æfingatíma
  • Reglur og mótafyrirkomulag
  • o.fl.

Námsmat

  • Skriflegt próf
  • Verklegt próf

Þjálfari 1 í staðnámi (1a, 1b og 1c)

Ef almennur hluti 1. stigs er kenndur í staðnámi er honum skipt í þrjá áfanga: 1a, 1b og 1c.

Þjálfari 1a – Almennur hluti

Markmið

Að loknu námskeiði getur þjálfari skipulagt og stjórnað æfingatímum fyrir börn og unglinga á byrjendastigi.

Áhersla er lögð á:

  • líkamlegan og andlegan þroska barna og unglinga
  • starfsemi líkamans
  • grunnatriði kennslufræða

Vinnulag

Fyrirlestrar, verkefnavinna og verklegar æfingar.

Umfang

20 kennslustundir.

Þjálfari 1b – Almennur hluti

Inntak náms

Framhaldsnámskeið almenns hluta 1a, samræmt fyrir allar íþróttagreinar. Námið er að mestu bóklegt og ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum.

Fjallað er m.a. um:

  • þroskaferil barna (vaxtar- og hreyfiþroska)
  • undirstöðuatriði kennslufræða
  • mikilvægi rétts mataræðis
  • fyrstu viðbrögð við íþróttameiðslum

Réttindi

Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt sérgreinahluta 1b fær réttindi til að þjálfa börn 12 ára og yngri undir eftirliti yfirþjálfara.

Vinnulag

Fyrirlestrar, verkefnavinna og verklegar æfingar.

Umfang

20 kennslustundir.

Þjálfari 1c – Almennur hluti

Inntak náms

Samræmt námskeið fyrir allar íþróttagreinar, að mestu bóklegt.

Áhersla er lögð á:

  • starfsemi líkamans og íþróttameiðsli
  • stefnu ÍSÍ í forvarnarmálum
  • notkun tölvu- og upplýsingatækni við þjálfun

Skilyrði fyrir þátttöku er að hafa lokið almennum hluta 1b.

Réttindi

Nemandi sem lýkur námskeiðinu ásamt sérgreinahluta 1c fær réttindi sem þjálfari barna 12 ára og yngri.

Vinnulag

Fyrirlestrar, verkefnavinna og verklegar æfingar.

Námsmat

Skriflegt próf úr efni 1. stigs (1a, 1b og 1c).

Umfang

20 kennslustundir.

Frekari upplýsingar

Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ veitir
Viðar Sigurjónsson: vidar@isi.is  eða í síma 5144000

Efni

Efni

Frekari upplýsingar

Allar frekari upplýsingar um þjálfaramenntun ÍSÍ veitir: